Fagmaster
Einkamál og ástarlíf
Annað
09.08.2006 00:31:38 / Gudrun

Elsku frændi

Minn elskulegi frændi, sem hefur glatt mig og grætt mig, mun yfirgefa landið á morgun. Skemmtu þér alveg ógeðslega vel, Bjarki minn, og njóttu hverrar mínútu. Passaðu þig svo á karlhórunum og hórumöngurunum, þú ert nefnilega svo fjandi fallegur eins og þessi mynd hér sýnir. Ég ELSKA þig þrátt fyrir offitu þína.

Frændsystkinin

P.s. takk fyrir farið á mánudaginn!! Asshole... ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 11:05:58 / Gudrun

Kaupmannahöfn og rigning hérna heima :(

Þá er maður kominn aftur til landsins og ekkert nema rigning og rok hérna eins og venjulega. Verð að játa það að ég er ekki alveg nógu ánægð með það að vera komin tilbaka - Danmörk var svo yndisleg í alla staði, veðrið alveg að gera sig, djammið og búðirnar ekki af verri endanum - og sakna ég líka sárt allra vinanna þarna úti. Það var ótrúlega gaman að hitta þessa krakka aftur og voru þeir ekki óduglegir við að halda manni uppteknum. Fór í svaka partý í fimm hæða villu, spiluðum tennis (kom strákunum skemmtilega á óvart að ég tók þá í gegn í Rússa), fórum í sund, grilluðum og drukkum ófáa kokteila. Tók meira að segja Hákon brósa með og hann skemmti sér bara ágætlega innan um þessa vitleysinga.

Köben er bara svo mikil snilld, ég elska það að þú getur hjólað útum allt og hún er svo hæfilega stór. Ölmenningin líka alveg að gera sig. En nú er maður kominn heim og verður bara að sætta sig við það - skólinn að byrja og þá þýðir ekkert hálfkák. Kaupmannahöfn verður bara að bíða í hálft eða eitt ár :)

Ég er svo ekki að nenna að mæta í vinnuna í dag - langar bara að leggjast undir sæng og soooooofa þar til það kemur sumar aftur... hehe... En það er víst ekki valmöguleiki.

Setti inn nokkrar myndir frá sunnudagskvöldinu, kíktum til Nonna í partý og svo í bæinn... hvað er málið með að kveikja ljósin á Vegó klukkan fjögur?!?!

Bleble elsku rjómabollurassar.


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 14:50:44 / Gudrun

Kaupmannahöfn!!

Kæru hálsar,

búið að vera viðbjóður að gera síðustu vikur. Búin að taka aukavaktir hægri og vinstri og lenda í misskemmtilegum hlutum þar á bæ... verður ekki farið nánar út í það hérna.

En hvað með það, Kaupmannahöfn er bara handan við hornið og glæder jeg mig så meget at jeg kan bare ikke vente! Búið að bjóða mér í grillveislu með öllu tilheyrandi partýstandi og búið að skrá mig í strandblakmót. Svo verður náttla kíkt í búðirnar eins og insane person... ásamt því að keyra yfir til Svíþjóðar - skoða háskólann, hitta Unni og Björgu... o.s.frv. 8) Verður alveg heavy gaman án vafa...

Sí jú eftir viku - bleee... ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 23:24:53 / Gudrun

Saltpillur

Jább, kominn mánudagur aftur og er ég bara þokkalega sátt við það. Var að vinna um helgina á 12 tíma næturvöktum og líka aðeins í Kringlunni á laugardaginn að kynna Mömmu ehf. Það var yndislegt.

Líst mjög vel á vikuna, búin að gera æfingaprógramm og ætla að vera orðin heavy flott þegar ég flýg til Danaveldis... byrja á spinning í fyrramálið... er strax farin að sjá eftir þeirri ákvörðun. Hlakka svo ógeðslega til að fara út það er ekkert eðlilegt. Til að byrja með þá verður gott að fá smá sól í smettið og á truflandi hvítan kroppinn - og svo verður auðvitað alpareunion - allavega við einhvern hluta af liðinu. Það verður mjög gaman að sjá þessa krakka í öðru umhverfi... og svo audda að kíkja á djammið eins og kreisí person - og má ekki gleyma LADES í þeim pakka. Soffía - þú veist að það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi :)

Átti annars yndislegan sunnudag, við faggarnir (fyrir utan Möggu og Gwen) fórum í sund og fengum svo borð úti á Vegó þar sem við sleiktum sólina þrátt fyrir talsverða gæsahúð. Ég sólbrann á öxlunum en það er bara af því að ég er hvítari en fuglaskítur og sól hefur ekki snert minn kropp síðan í Nice.

Fórum í útilegu í Hallgeirsey fyrstu helgina í júlí og eru komnar inn myndir fyrir þá sem hafa áhuga - næsta helgi verður svo yndisleg því ég er í fríííííi...

Svanný og ég

BleBle.


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 18:34:27 / Gudrun

Fimmtudagur... WHAT!!

Sjett hvað tíminn líður hratt!!

Önnur helgi komin og brjálað djamm á næsta leiti... :|

Ég verð komin með skorpulifur um þrítugt...

Kv. Fagmazter.


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 15:00:30 / Gudrun

D-J-A-M-M loksins!!

Hey girlies!

Minni hér á hittinginn heima hjá mér á 17. júní. Mæting upp úr klukkan níu. Skilyrði að vera í massastuði og til í að dansa með mér all night long... (einhver þarf að taka við hlutverki Guðnýjar...) :)

Hlakka til að sjá ykkur!! ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 10:19:34 / Gudrun

Miðvikudagurinn 7. júní

x; color:rgb(255,255,255); padding:3px; font-family:Arial;"> Which Napoleon Dynamite character are you?
x; font-family:Arial; background-color:rgb(216,233,237);">

You are Napoleon Dyanamite and a buttload of gangs are trying to recruit you.
Take this quiz!

Quizilla | Join | Make A Quiz | More Quizzes | Grab Code
Draumur minn hefur ræst.

» 15 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 19:34:41 / Gudrun

Bonja Bonja

Er nú bara að blogga til að segja öllum að skella sér í bæinn í kvöld - sérstaklega skemmtilega fólkinu - leiðinlega fólkið (t.d. það sem treður sér fram fyrir í röðum) má vera heima hjá sér.
Er stefnan sett á hinn ástkæra stað Vegamót á Vegamótastíg, beygir til vinstri þegar þú keyrir fram hjá Eymundsson á Laugaveginum. Ekki erfitt að finna þetta. Búin að eiga margar góðar stundir þarna með góðum vinum - meira að segja lent á sjéns og þá er nú mikið sagt. Spurning um að breyta um viðreynslusvip. En elskulegir faggar - treysti því að þið verðið allir úti í kvöld (nema þið ætlið að horfa á bestu mynd allra tíma, Napoleon Dynamite). Ég er með fullt af nýju krappi að segja ykkur og fullt af hugmyndum fyrir Sleifina, Hnallþórurnar og Geirþrúði.

C U ALL 2NITE!

» 9 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 10:38:49 / Gudrun

Hvað er að gerast..................................

Helgin var ágæt, var að vinna á laugardaginn í undirkjörstjórn og það leið nú bara ótrúlega hratt. Skemmtilegt fólk og smá spenna í gangi - lenti í smá ættardrama og það var bara hin ágætasta skemmtun fyrir mig og nærstadda.

Fór í bæinn á laugardaginn - er komin með þvílíkan viðbjóð á íslensku skemmtanalífi. Til að byrja með þá var þetta VIP partý í Iðuhúsinu - 200 manns boðið sem eru þekktir á Íslandi; fótboltamönnum, fyrirsætum, kvikmyndagerðarmönnum, ríku fólki o.s.frv. Svo voru einhverjir 100 miðar seldir til almúgans sem átti að gjöra svo vel að borga sig inn til að vera innan um þessa dýrð og fá að berja augum fallega og fræga fólkið. Veit um nokkra sem gerðu það og var svo ekki einu sinni hleypt inn, þrátt fyrir að skarta þessum ómetanlega "demanti" sem var sérpantaður frá Kína. Er engum öðrum en mér sem finnst þetta óeðlilegt?

Við Svanhvít fórum í stúdentsveislu til hans Bjarka og þar var mjög skemmtilegt. Drifum okkur svo á Nordica þar sem Sjálfstæðisflokkurinn var að djúsa. Þar var yndislega fallegur maður - svona fallegur að manni verður bara illt á að horfa á hann. Eftir það fórum við á Vegamót en þar þurftum við að bíða í ekki minna en hálftíma í röð og það sem er svo fyndið - VIP röðin var lengri en hin röðin. Ef það er eitthvað sem ég fyrirlít þá er það fólk sem treður sér í raðir - og enn meira fólk sem fer í VIP raðir. Ég segi þetta ekki vegna biturðar, mér finnst bara svo mikill hégómi í því að vera að troða sér fram yfir næsta mann sem er alveg jafn mikilvægur og hver annar. En því miður þá er til nóg af fólki í þessum heimi sem líður fyrir það að vera ekki alveg með báða fætur á jörðinni - og sérstaklega hérna á Íslandi þar sem svona menning þrífst sem hvergi annarsstaðar. Ég verð nú samt að játa það að ég hef nýtt mér VIP raðir - en það var í útlöndum og það telst þá ekki með!

Og hvað er málið með lítið úrval af strákum í bænum? Þegar inn var komið á Vegó voru svona tíu stelpur á hvern strák! Þetta er alveg vonlaust fyrir tvær stúlkur á lausu!

Ég ætla að vona að eitthvað fallegt gerist í lífi mínu svo næsta blogg verði jákvæðara... Hafið það gott ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 11:59:24 / Gudrun

Kosningar

Allir að mæta á morgun og kjósa!! 

- Guðrún.


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 23:22:15 / Gudrun

Mitch Kramer

Eins og ég er nú gleymin þá fór ég á djammið í gær, nýbúin að lofa líkama mínum tveggja vikna pásu. Hann lét mig líka gjalda allþokkalega í dag - og verður núna ekkert drukkið næsta mánuðinn!! Ég lofa, elsku líkami minn. Bara hollusta út í gegn og ræktin á hverjum degi. En þetta var samt þess virði því það var virkilega gaman.

Arnar frændi og Hrund buðu í eurovision partý. Svaka stuð þar og svo fórum við Bjarki, Rikki og Danni yfirpungur í bæinn. Veit ekki alveg hvernig fjórir tímar gátu liðið svona hratt, var komin heim um fimmleytið í morgun - pabba til mikillar gleði... En takk fyrir gott kvöld elsku bollurnar mínar - og Arnar og Hrund, takk kærlega fyrir boðið :)

Horfði á hina snilldarmynd Dazed and Confused í svona 26. skipti í fyrradag. Þessi mynd er án efa mesta snilld sem amerísk kvikmyndamenning hefur getið af sér. Þessi mynd hérna af honum Mitchie er einungis fyrir hana Elísabetu.

 

Svo er ég ógeðslega ánægð að vera loks komin með nýjan mann í fantasíurnar mínar þar sem Brad Pitt er búinn að skíta upp á bak og næstum því yfir andlitið á sér með hátterni sínu síðasta árið. Það er hann Cole Hauser - það er bara eitthvað við eldrauða krullótta hárið og tæru bláu augun hans. Það er örugglega ekkert grín að vera rauðhærður í Hollívúdd en hann púllar það ekkert smá vel... svona þegar hann er ekki með það litað :) Svo er hann með ótrúlega getnaðarlega rödd.

 

Cole Hauser Cole Hauser

Er nú farin að hátta - ætla að skella Síðasta Móhíkanum í tækið og sofna vært út frá henni... :$


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 09:35:11 / Gudrun

Spinning óð

Búin að fara þrisvar sinnum í röð í spinning - ætla mér að ná af fituleifunum frá Nice eins fljótt og hægt er. Held samt að ég sé að koma út á núllinu því að ég borða svo mikið Nóakropp að það jaðrar við geðveiki.

Hvað er samt málið með spinningkennara hérna á Íslandi? Þeir eru gjörsamlega í engu sambandi við þá sem eru að djöflast þarna á hjólunum, öskra bara og æpa: "Koma svo... eruð þið auuumingjar?!" eða "Þið getið gert miklu betur en þetta, þyyyyyyyyngja!". Svo hamast maður og hamast, reynir eins og maður getur, og fær bara einhvern skít tilbaka. Er ekki alveg að ná spekinni bak við þessa meðferð. Ég hélt nefnilega að tilgangurinn með líkamsrækt væri að líða vel og vera ánægður með sjálfan sig eftir mikil átök - en það er kannski vitleysa... en come on, það er fokking átak bara að mæta í tímann og gera sig að fórnarlambi geðveikra spinningkennara. Og tónlistin... hvað er málið með að hafa Bubba á fóninum? Auðvitað eru ekki allir svona - ég man eftir því í Nice þá fórum við Guðný stundum í spinning. Þar var sko stuð... slökkt ljósin og diskóljós sett á í staðinn ásamt neonljósum. Kennarinn þvílíkt hress og var í beinu sambandi við alla í tímanum, vissi hvað flestir hétu og lét alla fá allskyns hlutverk... miklu skemmtilegra :) Held að ég fari bara og læri að vera spinningkennari.

Ég var að ná í lög á netinu - fleiri lög með Ben Harper og svo nokkur með Jack Johnson. Upp á síðkastið fæ ég alltaf hálfgerðan hnút í magann þegar ég heyri ómþýða rödd hans Johnsons... örugglega því ég hlustaði á þetta daglega í ölpunum... :cry:

En að öðru... nú er Eurovision bara á næsta leiti - ég hef mikla trú á að Silvía Nótt komist áfram, skandall ef það gerist ekki. Henni er víst spáð 5. - 6. sæti í undankeppninni sem verður á morgun. Svo er það bara Eurovision partý og djamm á laugardaginn... ohh hlakka til!!

Nokkrar myndir frá bústaðnum 8)

1 Pósur í pottinum :)

2 Ég man ekki eftir þessu... 8|

5 Ohh hvað þetta er fallegt fólk!

3

Þynnkan daginn eftir.

» 8 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 14:33:31 / Gudrun

Fallegi sunnudagur

Helgin búin að vera alveg ótrúlega skemmtileg - á kvöldin allavega ;) Hef þjáðst af allsvakalegri þynnku síðastliðnu 24 tímana. Ég skil þetta ekki alveg, hérna áður fyrr gat maður farið út og drukkið og djammað eins og maður vildi, vaknað svo ferskari en íþróttaálfurinn, drifið sig í ræktina og bara átt sérdælis indælan dag daginn eftir. Þannig er þessu ekki háttað núna. Fórum í sumarbústað til Tinnu á föstudaginn og á laugardeginum virkaði ekki ein heilasella eins og hún á að gera. Átti samt indælan dag með mömmu þrátt fyrir skjálfta og hugsunarerfiðleika. Í gær fórum við Guðný í partý í 101 og svo var það bærinn. Þrátt fyrir einungis tvo bjóra er heilinn á mér steiktur í dag. Er því búin að ákveða að djamma ekki allavega næstu tvær helgar... :) Veðrið heldur svo áfram að vera yndislegt - of erfitt að hanga heima þegar það er svona gott veður :( Væri snilld að fara í sund og hangsa þar í nokkra tíma í sólbaði. Kemur svo í ljós að ég fer til Kaupmannahafnar í lok júlí og vonandi til Costa del Sol í eina viku í framhaldi af því! Flott að tana sig upp fyrir skólann - þetta fær mig líka til að drattast í ræktina þar sem ég er því miður orðin gegnsýrð af fegrunaráráttu Íslendinga. Á tout, G.

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 00:06:51 / Gudrun

Sjúkt?

Ég er orðin netfíkill. Það er að nálgast miðnætti, ég kem heim eftir ágætis bragðarefskvöld heima hjá Guðnýju og ég sé mig tilneydda til að fara inn til litla bróður míns, sem á að mæta í skólann klukkan átta í fyrramálið, vekja hann og tjékka á póstinum mínum - er þetta heilbrigt? I think not.

Í kvöld voru bara konur í sjónvarpinu á Skjá einum - eða þá kynvillingavinir hennar Tyru Banks sem vilja vera konur. Skemmti mér mjög vel við að horfa á þessi grey í America's next top model vera rifin niður, trampað á sjálfstrausti þeirra og hlegið að þeim um leið. Eftir það tók enn meiri skemmtun við en það var þátturinn Leiðin á toppinn. Einstaklega gaman að horfa á sætar stelpur reyna að vera kynþokkafullar um leið og fullri fötu af ísköldu vatni var hellt yfir hausinn á þeim. Skemmtilega óþægileg nærmynd líka af fyrrverandi ungfrú Ísland. Kvikmyndatökumaðurinn á hrós skilið. Eftir hálftíma af þessu bulli var mér nú eiginlega hætt að vera sama... búin að vera á landinu í fimm daga og þegar orðin gegnsýrð á heila og sál af þessari útlitsdýrkun sem á sér stað hérna. Mamma spurði mig í dag hvort þetta væri eðlilegt, að hún, komin á sextugsaldur, þyrfti að drífa sig í ræktina á hverjum degi, hrista spikið í hinum og þessum trimmtímum, til þess að reyna að líta út eins og táningur. Ég segi að það er fokking sorglegt að þurfa alltaf að miða sig við tágrannar sílíkonbombur sem líklegast vinna sem snyrtifræðingar eða í klámiðnaðinum. Það er meira til í lífinu en að vera gullfalleg/ur með fullkomin/nn kropp. Ekki skrítið samt að fólk verði geðveikt og obsessive þegar kemur að þessum hlutum hérna á Íslandi. Ég finn það strax á sjálfri mér að ég er farin að hata á mér líkamann, appelsínuhúðin sem var mér eitt sinn svo kær, ástarhandföngin sem ég bar ást til sem var svo tær, nú vil ég bara vera módel með augu skær... það kemur inn í huga minn eins og ferskur blær...

Æ ég verð að fara að gera eitthvað í þessum skáldskap mínum, ég fékk verðlaun once upon a time, en núna er ekki hægt að sjá að svo hafi verið - þessar heilasellur eru alveg að gefa sig. Frá og með morgundeginum mun ég eyða klukkutíma á dag í sálræna hugsun, andlega meðferð á líkama og sál og ná að semja almennilegt ljóð!

Er svo farin að sofa með honum Berlin en það er ímyndaður elskhugi minn sem kemur í formi bókar.

 Ich bin ein schweinhund und arschficker.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3